Vantrú til minnkunnar

Hugmyndir mannréttindaráðs Reykjavíkur eru illa ígrundaðar og varhugaverðar, og svo stekkur Vantrú um borð og það tel ég að geri hvorugum neinn greiða. 

Ég hef sjálf aldrei verið skráð í þjóðkirkjuna, en ég man ekki eftir að hafa skaðast af heimsóknum presta eða neinu öðru sem hafði trúarlega tilvísun í skólanum.  Hér var tekin ákvörðun árið 1000 að Island væri kristið land. Hér ríkir trúfrelsi, og er öllum frjálst að tilheyra söfnuði að eigin vilja, jafnvel engum, óski fólk þess.  En ef við förum að fjarlægja kristnar áherslur (sem hafa nú ekki verið neitt yfirgengilegar) úr skólunum, erum við ekki líka að kasta á glæ hluta menningar okkar?

Fulltrúar Mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar segja að það sé ekki verið að taka helgileikina og sálma úr jólaundirbúningnum?  Á hvaða forsendum ætti að leyfa þá? Verði þetta rugl að lögum, er ekki líklegt að það sé bara tímaspursmál hvenær eitthvað foreldri lætur reyna á lögin, og hversu langt þau ganga?


mbl.is Vantrú styður mannréttindaráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

....en ég man ekki eftir að hafa skaðast af heimsóknum presta eða neinu öðru sem hafði trúarlega tilvísun í skólanum.

Andstaða við trúboð í skólum er ekki byggt á þeirri skoðun að það sé skaðlegt.

Að boða sjálfstæðisflokkshugmyndir skaðar líklega ekki börn, en samt ertu vonandi á móti því.

En ef við förum að fjarlægja kristnar áherslur (sem hafa nú ekki verið neitt yfirgengilegar) úr skólunum, erum við ekki líka að kasta á glæ hluta menningar okkar?

Mikið af því sem verið er að reyna að stöðva er frekar nýlegt, t.d. að prestar mæti í leikskóla og kenni börnum að "tala við guð".

Hjalti Rúnar Ómarsson, 20.10.2010 kl. 15:49

2 identicon

Ég var staddur heima hjá ofstækisfullum vantrúarmanni á aðventunni í fyrra.  Þá varð ég vitni að því að hann minnti litlu dóttur sína á að fyrsti jólasveinninn myndi koma í nótt og best væri að setja skóinn út í glugga og fara snemma að sofa.  Þetta fannst mér fyndið.  Það var í lagi að börnin tryðu á jólasveinanna.

Gunnar H. (IP-tala skráð) 20.10.2010 kl. 16:22

3 identicon

@Gunnar H.

Krakkinn vonandi vex nú uppúr því, það er annað með kristið fólk og Guð.

Magnús Eggertsson (IP-tala skráð) 20.10.2010 kl. 17:09

4 Smámynd: Hans Miniar Jónsson.

Það eru svakalegar ranghugmyndir um þettað í gangi.

Það er ekki verið að fjarlægja "allt kristið" úr skólum og leikskólum, bara kirkjuna og hennar starfsmenn.

Hans Miniar Jónsson., 20.10.2010 kl. 17:36

5 Smámynd: Þorgerður María Halldórsdóttir

En ef það er ekki verið að fjarlægja "allt kristið" á hvaða forsendum verður kristið innihald þá?

Þorgerður María Halldórsdóttir, 20.10.2010 kl. 22:33

6 Smámynd: Hans Miniar Jónsson.

Trúfrelsis og trúfræði.

Hans Miniar Jónsson., 21.10.2010 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband